3H-Ráðgjöf ehf.

Fólkið

Hafdís Perla Hafsteinsdóttir

Lögfræðingur

Hannes Frímann Sigurðsson

Tæknifræðingur

Hannes 3
Hafdís

Hafdís Perla er með meistarpróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi síðan 2011.

Hafdís Perla hefur umfangsmikla reynslu á sviði opinberra innkaupa bæði á grundvelli laga um opinber innkaup, veitureglugerðarinnar og sérleyfisreglugerðarinnar.

Hún hefur leitt gerð útboðsgagna og samninga fyrir stórar verklegar framkvæmdir og við kaup á sértækum búnaði og tækjum. Hún hefur einnig leitt ágreiningsmál fyrir kærunefnd útboðsmála og dómstólum

Hannes Frímann er menntaður Byggingatæknifræðingur B.Sc og er með tvær meistaragráður í verkefnastjórnun MPM og MSc frá HR og er í doktorsnámi í verkefnastjórnun. Hannes er með alþjóðlega B vottun í verkefnastjórnun (IPMA), og er löggiltur hönnuður fyrir burðarvirki, loftræstikerfi, vatns- hita og fráveitukerfi. 

Hannes hefur mikla reynslu í verkefnastjórn og framkvæmdastjórn. Hann hefur leitt nokkur nýsköpunarverkefni og rekið stór eignasöfn í fasteignastjórnun.

Hannes  undirbjó og leiddi sem verkefnastjóri leiddi fyrsta samkeppnisútboð Framkvæmdasýslu - Ríkiseigna og fyrsta samstarfsleiðarútboð á Íslandi fyrir opinbera aðila.

Hannes hefur jafnframt mikla reynslu við undirbúning og vinnslu skipulagsverkefna og var verkefnisstjóri við breytingar á miðbæjarreitum, Vogabyggð og fyrstu útfærslur við Smárasvæðið ásamt mörgum fleiri slíkum verkefnum.